Atlético Madrid gerði góða ferð til Navarre og vann eins marks útisigur á Osasuna í spænsku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Sigurmarkið skoraði varamaðurinn Saul Niguez á 74. mínútu eftir sendingu frá Rodrigo De Paul en Saul hafði komið inn á völlinn níu mínútum fyrr. Reyndist það eina mark leiksins og afar mikilvægur sigur Atlético var staðreynd.
Atlético Madrid er í fjórða sæti deildarinnar með 34 stig, þremur meira en Villareal og Real Betis sem eiga bæði leik til góða. Osasuna hefur komið á óvart á tímabilinu og er í sjöunda sæti með 28 stig.