Knattspyrnumaðurinn Raphaël Varane er hættur að leika með franska landsliðinu. Tilkynnti hann um ákvörðun sína á Instagram í dag. Varane lék 93 landsleiki fyrir Frakkland og skoraði í þeim fimm mörk.
Varane, sem er 29 ára gamall, hefur leikið með franska liðinu frá árinu 2013. Varð hann heimsmeistari með Frökkum árið 2018 og lék í úrslitaleiknum í Katar í lok síðasta árs.
Varnarmaðurinn, sem leikur með Manchester United, fylgir í fótspor markvarðarins Hugo Lloris, en Lloris, sem var fyrirliði landsliðsins, lagði landsliðshanskana á hilluna eftir heimsmeistaramótið.