Rekinn eftir hálft ár í starfi

Nenad Bjelica er atvinnulaus eftir hálft ár í Berlín.
Nenad Bjelica er atvinnulaus eftir hálft ár í Berlín. AFP/Thomas Kienzle

Forráðamenn þýska knattspyrnufélagsins Union Berlín hafa rekið Króatann Nenad Bjelica frá starfi, en hann hefur stýrt karlaliði félagsins undanfarið hálft ár.

Ákvörðunin var tekin eftir 4:3-tapið á heimavelli gegn Bochum í gær, en Union er í mikilli fallbaráttu þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni og hefur tapað fjórum leikjum af síðustu fimm.

Tímabilið hefur verið mikil vonbrigði hjá Union, sem endaði í fjórða sæti á síðustu leiktíð og tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu.

Nú er liðið í 15. sæti með 30 stig eftir 32 leiki, einu stigi fyrir ofan Mainz sem er í fallumspilssæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert