Aníta Hinriksdóttir bætti sinn besta árangur á árinu í 800 metra hlaupi í annað skipti á þremur dögum er hún hljóp á 2:01,92 mínútum á sterku móti í Ostrava í Tékklandi í gær.
Aníta hljóp á 2:02,21 mínútum á Demantamóti í Stokkhólmi síðastliðna helgi og virðist hún vera að komast í sitt besta stand. Íslandsmet Anítu síðan í fyrra er 2:00,05 mínútur.
Hún hafnaði í sjötta sæti í hlaupinu í gær á eftir Rababe Arafi frá Marokkó sem vann á 1:59,20 mínútu, Noélie Yarigo frá Benín varð í öðru sæti og Olha Lyakhiva frá Úkraínu hafnaði í 3. sæti.