Bandaríska tenniskonan Serena Williams fór upp um 153 sæti á heimslistanum þrátt fyrir að hún tapaði fyrir Angelique Kerber í úrslitaleik Wimbledon-mótsins um nýliðna helgi.
Willams er nú í 28. sæti listans, en hún hefur aðeins spilað fjórum sinnum á síðustu tveimur árum vegna barneigna. Á Wimbledon missti Williams af tækifæri til að vinna sitt 24. risamót, sem hefði jafnað heimsmet Margaret Court.
Simona Halep frá Rúmeníu er efst á listanum, þrátt fyrir að hún féll úr leik í 32-manna úrslitum Wimbledon-mótsins og sigurvegarinn, Angelique Kerber er í fjórða sæti.