Íslendingaliðið West Wien mátti þola 25:29-tap á móti toppliði Krems í efstu deild Austurríkis í handbolta í kvöld.
Þrátt fyrir tapið átti Viggó Kristjánsson stórleik fyrir West Wien og skoraði tíu mörk. Guðmundur Hólmar Helgason skoraði þrjú og Ólafur Bjarki Ragnarsson gerði eitt mark.
West Wien er í fjórða sæti austurrísku deildarinnar með 12 stig en Krems í toppsætinu með 20 stig.