Dáist að æðruleysinu

Líney Rut Halldórsdóttur og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, ásamt atvinnukylfingnum …
Líney Rut Halldórsdóttur og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, ásamt atvinnukylfingnum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, sendi í dag afreksíþróttafólki hvatningu. 

Skilaboðin frá Líneyju fyrir hönd ÍSÍ bárust mbl.is í dag: 

„Nú er ljóst að Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 og Ólympíumóti fatlaðra [Paralympics] hefur verið frestað. Þetta hefur áhrif á marga, m.a. okkur sem undirbúum þátttöku Íslands hvort heldur er ÍSÍ eða sérsambönd ÍSÍ. Allra mest hlýtur ástandið í heiminum þó að hafa áhrif á afreksíþróttafólkið okkar sem hefur stefnt að þátttöku í stórmótum í mörg ár og miðað allar sínar áætlanir við tímasetningu viðburðanna.

Nú þarf að endurmeta stöðuna og endurhugsa allar áætlanir. Það krefst úthalds, þolinmæði, jákvæðni og aðlögunarhæfni. Við hjá ÍSÍ viljum senda íslensku íþróttafólki okkar bestu hvatningarkveðjur. Okkur finnst þið standa ykkur sérlega vel og dáumst að því æðruleysi og þeirri jákvæðni sem þið sýnið í erfiðum aðstæðum. Við fyllumst stolti yfir því hvað þið eruð lausnamiðuð í erfiðri stöðu og höfum alla trú á því að þið verðið í ykkar besta formi þegar að leikunum kemur.

Við hjá ÍSÍ höldum hiklaust áfram undirbúningi fyrir Ólympíuleikana og erum í nánu sambandi við Íþróttasamband fatlaðra hvað varðar þátttöku Íslands á Ólympíumóti fatlaðra. Við tökum einn dag í einu. Við vitum að þið íþróttafólkið verðið líka tilbúin í slaginn. Gangi ykkur sem allra best í ykkar undirbúningi ykkar!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert