Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans hjá Darmstadt fengu 3:0 skell gegn Jahn Regensburg í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Jahn Regensburg er í 9. sæti í deildinni.
Guðlaugur Victor spilaði allan tímann á miðjunni í liði Darmstadt sem hefur aðeins fatast flugið í deildinni upp á síðkastið. Liðið hefur 43 stig og er í 5. sæti, sex stigum á eftir Hamburger SV í umspilssæti sem einnig á leik til góða.