„Ég kynntist kærustunni minni og barnsmóður minni í ræktinni og við æfðum nánast alltaf saman,“ sagði Júlían J. K. Jóhannsson, margfaldur heims- og Evrópumeistari í réttstöðulyftu, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.
Unnusta Júlíans, Ellen Ýr Jónsdóttir, hefur einnig náð frábærum árangri í kraftlyftingum en þau eignuðust sitt fyrsta barn í mars á síðasta ári, Berg J. K. Júlíansson.
Þau eiga von á sínu öðru barni en Bergur er strax byrjaður að láta til sín taka þegar kemur að kraftlyftingum.
„Það er mjög gott að vera í sambandi með manneskju sem er á sömu blaðsíðu og maður sjálfur og deilir sama áhugamáli,“ sagði Júlían.
„Strákurinn þarf að finna sína leið í þessu öllu en hann er strax byrjaður að taka hnébeygjur með kústskaftið heima,“ sagði Júlían.
Viðtalið við Júlían í heild sinni má nálgast með því að smella hér.