Osaka úr leik í 1. umferð

Naomi Osaka féll úr leik í 1. umferð.
Naomi Osaka féll úr leik í 1. umferð. AFP/Christophe Archambault

Japanska tennisstjarnan, Naomi Osaka, er úr leik á Opna franska meistaramótinu í tennis. Mótið er eitt fjögurra risamóta ársins.

Osaka féll úr leik strax í 1. umferð, gegn Amöndu Anisimovu frá Bandaríkjunum. Anisimova vann í tveimur settum, 7:5 og 6:4.

Osaka, sem er 24 ára, hefur fjórum sinnum fagnað sigri í einliðaleik á risamóti, síðast á Opna ástralska á síðasta ári.

Eitt ár er síðan Osaka dró sig úr keppni á Opna franska vegna andlegra veikinda en hún hafði áður hafnað því að mæta á blaðamannafundi sökum kvíða.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert