Jón Arnór skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í körfuknattleik, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.

Stjórn Þjóðarhallar ehf. skipa fimm einstaklingar. Ríki og borg tilnefndu tvo fulltrúa hvort sem sitja í stjórn ásamt formanni.

Þau eru Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, Þórey Edda Elísdóttir, Ómar Einarsson og Ólöf Örvarsdóttir.

Varamenn eru Högni Haraldsson og Þórhildur Lilja Ólafsdóttir.

Fyrsta verkefni að hefja forval fyrir útboð

Greint var frá undirritun samnings ríkis og borgar um stofnun félagsins á miðvikudag. Það er 55 prósent í eigu ríkisins og 45 prósent í eigu Reykjavíkurborgar.

Fyrsta verkefni stjórnarinnar er að hefja forval fyrir samkeppnisútboð um hönnun og byggingu mannvirkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert