Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili keppa báðar í LET Access-mótaröðinni í þessari viku.
Mótið heitir Terre Blanche og fer fram á samnefndum velli í Frakklandi. LET Access-mótaröðin er næststerkasta atvinnumótaröðin í Evrópu á eftir LET-Evrópumótaröðinni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún Brá keppir sem atvinnukylfingur en Valdís Þóra hóf atvinnumannsferil sinn í þessari mótaröð.
Fyrsti keppnisdagurinn er föstudagurinn 6. apríl og verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum. Niðurskurður er eftir annan keppnisdag.