Guðmundur Ágúst Kristjánsson hóf leik í dag á Gamle Fredrikstad Open-mótinu á Nordic Golf-mótaröðinni. Aðeins eru þrír dagar liðnir síðan hann stóð uppi sem sigurvegari á PGA Championship á sömu mótaröð.
Guðmundur lék á 72 höggum, eða á parinu, á fyrsta hring í dag. Guðmundur fékk þrjá fugla, þrjá skolla og tólf pör á hringjunum átján.
Hann er í 39. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Þrír leikir eru leiknir á mótinu og sá síðasti á fimmtudag.
Aron Bergsson, sem hefur leikið í Svíþjóð, er einnig á meðal á meðal keppenda á mótinu. Aron lék sömuleiðis á 72 höggum.