Birgir Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru á meðal keppenda á móti í Áskorendamótaröðinni sem hófst í Austurríki í morgun, Euram Bank Open-mótinu.
Guðmundur Ágúst tryggði sér á dögunum keppnisrétt í Áskorendamótaröðinni þegar hann sigraði á sínu þriðja móti á tímabilinu í Nordic Tour-mótaröðinni.
Birgir Leifur er með keppnisrétt í Áskorendamótaröðinni eins og undanfarin ár en hefur aðeins tekið þátt í einu móti á tímabilinu.
Birgir Leifur hefur farið vel af stað en hann er á þremur höggum undir pari eftir sex holur en Guðmundur Ágúst er á einu höggi undir pari eftir þrjár holur.