Davis Love III verður fyrirliði bandaríska liðsins í keppninni um Forsetabikarinn í golfi sem fram fer á næsta ári.
Keppnin er sveitakeppni á milli Bandaríkjanna og kylfinga utan Bandaríkjanna og Evrópu. Keppnin fer fram annað hvort ár eins og keppnin um Ryder bikarinn. Forsetabikarinn átti að fara fram seint á þessu ári en var frestað um ár þegar Ryder bikarnum var frestað um ár. Sú keppni átti að vera á síðasta ári en verður í haust.
Love III hefur reynsluna því hann var fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder bikarnum 2012 og 2016 en í síðasta skiptið höfðu Bandaríkjamenn sigur.
Fyrirliðar Ryder liðanna í haust verða Steve Stricker og Padraig Harrington.