„Slátturinn var svo sem allt í lagi og ég púttaði vel. Það var áfall að kasta höggunum frá sér á 1. og 2. braut í dag en ég hefði vel getað fengið fleiri fugla en þessa tvo sem ég fékk í kjölfarið.
Á síðustu holunni átti ég mjög fín högg en flaug boltanum yfir flötina í innáhögginu og púttaði svo of stutt af brautinni. Ég átti þá þriggja metra pútt eftir fyrir parinu og því að ná niðurskurðinum en ég krækti og því fór sem fór,“ sagði atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson í stuttu samtali við mbl.is að loknum öðrum hring Investec South African-mótsins í dag.
Mótið var annað mót Guðmundar Ágústs á Evrópumótaröðinni síðan hann varð á dögunum annar íslenski karlkylfingurinn til að tryggja sér fullan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni.
Hann lék á 72 höggum eða á pari Blair Atholl-vallarins á fyrsta hring á fimmtudag og á 71 höggi eða einu höggi undir pari í dag. Niðurskurðurinn miðaðist við tvö högg undir pari og Guðmundur er því úr leik.
„Spilamennskan var alveg ágæt heilt yfir og sömuleiðis tilfinningin fyrir framhaldinu.“
Guðmundur Ágúst er ofarlega á biðlista fyrir Alfred Dunhill-meistaramótið í Suður-Afríku í næstu viku en er með öruggt sæti á Mauritius Open, sem hefst 15. desember næstkomandi.