Guðrún Ósk valin mikilvægasti leikmaðurinn

Guðrún Ósk Maríasdóttir, markvörður Fram, brá sér í sóknina með …
Guðrún Ósk Maríasdóttir, markvörður Fram, brá sér í sóknina með eftirminnilegum hætti í einum af úrslitaleikjunum gegn Stjörnunni. Rakel Dögg Bragadóttir til varnar. Fjær er Helena Rut Örvarsdóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Guðrún Ósk Maríasdóttir úr Fram var valin mikilvægasti leikmaðurinn í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handknattleik sem lauk í gær þegar Fram tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Stjörnunni í fjórða úrslitaleik liðanna í Safamýri.

Guðrún Ósk varði mark Framara af stakri snilld í flestum leikjum liðsins í úrslitakeppninni og toppaði svo í gærkvöld þegar hún varði 27 skot, þar af tvö vítaskot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert