Fram er komið áfram í 2. umferð Coca Cola-bikars karla í handbolta eftir 23:18-sigur á Akureyri á heimavelli sínum í kvöld. Staðan í hálfleik var 11:11.
Línumaðurinn Valdimar Sigurðsson var í stuði og skoraði níu mörk fyrir Fram og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði sjö. Gunnar Valdimar Johnsen og Leonid Mykhailiutenko gerðu fjögur fyrir Akureyri.
Fram komst alla leið í bikarúrslit á síðasta tímabili en varð að sætta sig við tap gegn ÍBV í úrslitum.