Það er stórleikur á dagskrá í 9. umferð Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld en þá taka Valsmenn á móti FH-ingum í Origo-höllinni að Hlíðarenda.
FH er í 3. sæti deildarinnar með 12 stig og með sigri í kvöld komast FH-ingar upp að hlið Hauka sem eru í toppsætinu með 14 stig. Valsmenn eru í 5. sæti deildarinnar með 11 stig og með sigri í kvöld komast þeir upp í 2. sæti deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Annað kvöld mætast Íslandsmeistarar ÍBV og KA í Eyjum og 9. umferðinni lýkur á miðvikudaginn þegar Selfoss tekur á móti Fram.