Íslendingarnir hjá West Wien skoruðu 17 mörk af 31 þegar liðið vann góðan útisigur á Bregenz 31:27 í austurríska handboltanum í kvöld.
Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk, Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 6 og Guðmundur Hólmar Helgason skoraði 4 en fjórði Íslendingurinn, Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. '
Bregenz er í 3. sæti deildarinnar með 15 stig en West Wien er með 14 stig.
Þess má geta að Dagur Sigurðsson um nokkurra ára skeið spilandi þjálfari Bregenz snemma á öldinni síðar þjálfaði Geir Sveinsson liðið áður en hann færði sig um set til Þýskalands og tók við Magdeburg.