Norska landsliðið í handknattleik kvenna vann stórsigur á hollenska landsliðinu, 29:16, í milliriðlakeppni Evrópumótsins í Frakklandi í kvöld eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik, 15:7. Þar með lifir vonin ennþá hjá norska landsliðinu, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, um sæti í undanúrslitum mótsins fyrir lokaumferð riðlakeppninnar sem fram fer á morgun.
Norðmenn mæta Spánverjum á morgun og þurfa á sigri að halda til að komast í undanúrslit. Einnig þarf norska liðið að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum riðilsins.
Eins og úrslitin gefa til kynna þá réð norska liðið lögum og lofum í leiknum við Hollendinga í kvöld. Norðmenn tóku völdin strax með því að skora fimm af fyrstu sex mörkum leiksins. Hollendingar voru aldrei með á nótunum. Sóknarleikurinn var slakur í leiknum og til að mynda tapaði liðið boltanum oftar en það skoraði. Katrine Lunde fór á kostum í norska markinu og varði nærri helming þeirra skota sem komu á markið þann tíma sem hún stóð í markinu.
Tíu leikmenn norska landsliðsins skoruðu mark í leiknum í kvöld. Þeirra markahæst var Marit Rosberg Jacobsen með fimm mörk.
Rúmenía og Holland eru í efstu sætum milliriðils tvö fyrir lokaumferðina á morgun með sex stig hvort. Noregur, Þýskaland og Ungverjaland hafa fjögur stig hvort en Spánverjar eru án stiga.
Á morgun mætir Noregur Spáni, Ungverjaland og Rúmenía eigast við og Holland og Þýskaland.