Fimmtán íslensk mörk hjá toppliðinu

Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Andrés Guðmundsson spiluðu vel í …
Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Andrés Guðmundsson spiluðu vel í kvöld. AFP

Topplið Kristianstad vann góðan 32:25-heimasigur á Alingsås í efstu deild Svíþjóðar í handbolta í kvöld. Íslendingarnir þrír hjá Kristianstad voru áberandi og skoruðu fimmtán mörk. 

Markahæstur þeirra var Ólafur Andrés Guðmundsson með sjö mörk og þeir Arnar Freyr Arnarsson og Teitur Örn Einarsson skoruðu fjögur mörk hvor. Kristianstad er með 44 stig, átta stigum meira en Malmö sem er í öðru sæti. 

Ágúst Elí Björgvinsson varði fimm skot í markinu hjá Sävehof sem mátti þola naumt tap á heimavelli fyrir Redbergslids, 28:29. Ágúst og félagar eru í sjötta sæti deildarinnar með 33 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert