Birna Berg Haraldsdóttir og samherjar hennar í Neckarsulmer unnu mikilvægan 28:27-sigur á Bad Wildungen í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag.
Birna Berg skoraði fimm mörk í leiknum og þar á meðal sigurmarkið úr vítakasti eftir að leiktíminn rann út. Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Birnu, sem eru í baráttu við botninn á deildinni.
Neckarsulmer er nú með átta stig og í ellefta sæti. Nellingen, sem er í 13. sæti, sem er fallsæti, er aðeins tveimur stigum á eftir.