Rut Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í danska liðinu Esbjerg leika til úrslita um EHF-bikar kvenna í handknattleik eftir öruggan 30:16-sigur gegn Herning-Ikast í Danmörku í seinni leik liðanna í undanúrslitum keppninnar dag. Rut komst ekki á blað hjá Esbjerg sem leiddi með tólf mörkum í hálfleik.
Fyrri leik liðanna lauk með 23:20-sigri Esjberg og liðið vann því einvígið, samanlagt 53:36. Esjberg mætir ungverska liðinu Siófok í úrslitum en liðið lagði Viborg sannfærandi í hinu undanúrsliteinvíginu. Fyrri úrslitaleikurinn fer fram 4.-5. maí í Ungverjalandi og seinni úrslitaleikurinn 11.-12. maí í Danmörku.