Handknattleiksdeild ÍBV hefur gengið frá samningi við tvo nýja leikmenn fyrir kvennalið félagsins. Darija Zecevic og Ksenija Dzaferovic sömdu við ÍBV í dag, en báðar koma þær frá Svartfjallalandi.
Zecevic er 21 árs gamall markvörður sem var síðast á mála hjá Zurd Koper í Slóveníu og Dzaferovic er 19 ára gömul skytta og var síðast á mála hjá ZRK Budućnost í Svartfjallalandi.
„Við bjóðum stelpurnar velkomnar til Eyja og hlökkum til samstarfsins," segir í tilkynningu ÍBV í dag.
ÍBV hafði áður samið við þær pólsku Mörtu Wawrzynkowska og Karlinu Olszowa. Wawrzynkowska er 27 ára markmaður og Olszowa er 26 ára gömul skytta.