Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur gert tvær breytingar á leikmannahópi sínum sem mætir Færeyjum í tveimur vináttulandsleikjum á Ásvöllum 23. og 24. nóvember næstkomandi.
Rut Jónsdóttir og Íris Björk Símonardóttir þurftu að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og hefur Arnar því kallað þær Hildi Björnsdóttur og Andreu Gunnlaugsdóttur úr Val í hópinn í þeirra stað.
Leikirnir gegn Færeyjum fara fram klukkan 17 og er frítt inn.