Topplið Fram vann sinn níunda deildarsigur í röð er liðið lagði HK að velli, 32:22, í Safamýrinni í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni.
Framarar töpuðu gegn Íslandsmeisturum Vals í þriðju umferð en hafa unnið alla leiki síðan og eru nú með 24 stig á toppnum, fimm stigum á undan Val sem á leik til góða. Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst í Framhúsinu með níu mörk en Ragnheiður Júlíusdóttir kom henni næst með átta mörk. Fyrir gestina skoraði Jóhanna Margrét Sigurðardóttir sjö mörk.
HK er í 5. sæti með 12 stig en liðið hefur unnið fimm, tapað fimm og gert tvö jafntefli. HK fær næst Stjörnuna í heimsókn í Kórinn en Framarar heimsækja Hauka á Ásvelli.