Aron Pálmarsson og félagar í spænska meistaraliðinu í handknattleik, Barcelona, geta ekki spilað næstu tíu dagana í kjölfar þess að þrír leikmenn liðsins hafa greinst með kórónuveiruna.
Aron og samherjar hans áttu að fara til Ungverjalands á morgun og leika gegn hans gamla félagi Veszprém í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Þeim leik hefur verið frestað, sem og leik í spænsku 1. deildinni gegn Benidorm sem fram átti að fara um næstu helgi.
Barcelona greinir frá þessu á heimasíðu sinni í dag og þar kemur fram að ekki hafi verið fundnir nýir leikdagar fyrir þessa tvo leiki, enn sem komið er.