Kristján Örn Kristjánsson og samherjar í franska liðinu Aix gengur allt í haginn um þessar mundir og liðið vann góðan útisigur í kvöld.
Kristján skoraði fimm mörk þegar Aix vann Dunkerque á útivelli 26:25 eftir spennandi leik. Kristján var með fína skotnýtingu en hann skaut átta sinnum á markið.
Dunkerque hefur oft verið sterkt á heimavelli í gegnum árin og því góð stig fyrir Aix sem unnið hefur fimm leiki í röð og fimm af sex í upphafi tímabilsins. Liðið tapaði því fyrsta leiknum en hefur síðan þá verið í miklu stuði.
Aix er í 6. sæti með 10 stig en Dunkerque í 7. sæti með 9 stig.