Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson er þessa dagana til reynslu rússneska liðinu Krilia Sovetov.
Það var fótbolti.net sem greindi fyrstur miðla frá þessu en Krilija Sovetov leikur í rússnesku B-deildinni og er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 55 stig eftir 26 umferðir.
Efstu tvö lið deildarinnar fara beint upp í úrvalsdeildina en liðið í þriðja og fjórða sætinu mætast í umspili um laust sæti í efstu deild.
Árni hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Kolos Kovalivka í Úkraínu síðasta sumar.
Framherjinn er uppalinn hjá Breiðabiki en hann hefur leikið í Póllandi, Úkraínu, Noregi og Svíþjóð á atvinnumannsferli sínum.