Þau Karolis Stropus og Roberta Ivanauskaité hafa samið við handknattleiksdeild Selfoss til þriggja ára.
Ivanauskaité er 23 ára skytta og spilaði síðast með Aftureldingu í úrvalsdeildinni tímabilið 2019-2020, en var frá á síðasta tímabili vegna meiðsla. Þar áður lék hún í þýsku fyrstu deildinni með liði Neckarsulmer.
Stropus er 30 ára skytta sem spilaði með Þór á Akureyri í vetur, en einnig hefur hann leikið með Aftureldingu, Víkingi og Akureyri á Íslandi.
Bæði hafa þau leikið töluvert fyrir landslið Litháens og bæði spilað með Dragunas frá Klaipeda. Stropus spilaði m.a. með Dragunas þegar Selfoss mætti liðinu í Evrópukeppninni haustið 2018.
„Það er ljóst að að þau eru góð viðbót við meistaraflokkana okkar. Við bjóðum þau bæði tvö hjartanlega velkomin á Selfoss,“ segir í yfirlýsingu félagsins.