Ómar Ingi Magnússon, marka- og stoðsendingahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, hélt uppteknum hætti í dag og var í aðalhlutverki þegar Magdeburg hélt áfram sigurgöngu sinni.
Magdeburg lagði Leipzig, 30:28, á heimavelli og hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á tímabilinu. Ómar var markahæstur með 6 mörk og átti flestar stoðsendingar, fimm talsins. Hann hefur þar með skorað 30 mörk og átt 24 stoðsendingar í fyrstu fimm umferðum deildarinnar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var jafnframt með eitt mark og eina stoðsendingu fyrir Magdeburg í leiknum.