Stórleikur Teits í öruggum sigri

Teitur Örn Einarsson lék afar vel í kvöld.
Teitur Örn Einarsson lék afar vel í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Teitur Örn Einarsson fer sannarlega vel af stað með nýja liðinu sínu, hinu þýska Flensburg, en hann átti frábæran leik í 34:27 sigri á  Motor Zaporozhye í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld.

Teitur Örn skoraði sjö mörk og lagði upp önnur tvö og var næstmarkahæstur í leiknum.

Um var að ræða fyrsta sigur Flensburg í riðlinum þar sem liðið hefur nú leikið sex leiki og er á botninum.

Í A-riðlinum mættust Meshkov Brest og Elverum. Elverum fór með sigur af hólmi, 30:27, þar sem Orri Freyr Þorkelsson var á leikskýrslu en komst ekki á blað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka