Selfoss fær sænskan markvörð

Cornelia Hermansson kemur frá Kärra HF.
Cornelia Hermansson kemur frá Kärra HF. Selfoss.net

Sænski markmaðurinn Cornelia Hermansson gengur til liðs við Selfoss. Hún gerir tveggja ára samning við félagið sem spilar í úrvalsdeild kvenna í handbolta í vetur eftir fjögurra ára fjarveru.

Cornelía er 21 árs gömul og kemur til Selfoss frá  Kärra HF í Svíþjóð. Hún hefur einnig spilað með Önnereds HK í Svíþjóð. Cornelía kemur til landsins í lok júlí og hefur æfingar með liðinu í framhaldi þess. Fyrsti leikur Selfoss er 17. september á móti HK í Kórnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert