Ágúst Elí Björgvinsson átti góðan leik fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið heimsótti Skjern í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Leiknum lauk með tveggja marka sigri Skjern, 30:28, en Ágúst Elí varði 9 skot í marki Ribe-Esbjerg.
Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir Ribe-Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánarson komst ekki á blað hjá danska liðinu.
Sveini Jóhannssyni ekki að skora fyrir Skjern sem er með 6 stig í sjöunda sætinu en Ribe-Esbjerg er með 7 stig í fjórða sætinu.