Bjarni Ófeigur Valdimarsson hélt uppteknum hætti með liði sínu Skövde þegar það gerði 28:28-jafntefli við Önnered í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í kvöld.
Stórskyttan Bjarni Ófeigur skoraði sjö mörk fyrir Skövde og var markahæsti leikmaður liðsins. Gaf hann auk þess eina stoðsendingu.
Markahæstur í leiknum var hins vegar Christoffer Brännberger með tíu mörk fyrir Önnered.
Skövde er eftir jafnteflið í 5. sæti sænsku deildarinnar með 13 stig eftir 12 leiki.
Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark fyrir Sävehof, sem vann 29:27-útisigur á botnliði Redbergslid.
Sävehof er því áfram í 2. sæti deildarinnar, nú með 19 stig eftir 12 leiki.