Frábærar vörslur landsliðsmarkvarðarins

Viktor Gísli Hallgrímsson.
Viktor Gísli Hallgrímsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viktor Gísli Hallgrímsson átti góða innkomu hjá Nantes þegar liðið heimsótti Wisla Plock í fyrri leik liðanna í 12-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handknattleik í Póllandi í gær.

Viktor Gísli varði fjögur skot í leiknum sem lauk með jafntefli, 32:32, en liðin mætast á nýjan leik eftir viku í Frakklandi.

Tvær af markvörslum Viktors í gær voru sérlega glæsilegar en evrópska handknattleikssambandið birti myndband af þeim í morgun á Instagram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert