Nígería verður næsti mótherji Íslands á HM karla í knattspyrnu en þjóðirnar mætast í Volgograd á föstudaginn.
Ísland og Nígería hafa aðeins einu sinni mæst í A-landsleik karla. Það var árið 1981 en þá áttust við liðin í vináttuleik á Laugardalsvellinum. Íslendingar fögnuðu 3:0 sigri þar sem Árni Sveinsson, Lárus Guðmundsson og Marteinn Geirsson skoruðu mörk íslenska liðsins.
Ísland gerði sem kunnugt er 1:1 jafntefli við Argentínu í fyrsta leik sínum á HM í Moskvu í gær en Nígería tapaði fyrir Króatíu 2:0 í Kalingrad.