Eigendur NBA-liðsins Seattle SuperSonics hafa komist að samkomulagi við borgaryfirvöld í Oklahoma og mun liðið færa sig um set fyrir næstu leiktíð. Borgaryfirvöld í Seattle og eigendur Sonics hafa deilt um framtíð félagsins á undanförnum árum en borgaryfirvöld vildu ekki taka þátt í ýmsum kostnaði félagsins vegna uppbyggingar á nýjum heimavelli félagsins.
Eigendur Seattle SuperSonics greiða um 6 milljarða kr. til borgarinnar vegna heimavallar félagsins en nafn félagsins og félagslitirnir verða í eigu Seattle borgar.
Clay Bennett, eigandi félagsins, er ánægður með niðurstöðuna en hann telur að framtíð félagsins sé björt á nýjum stað. Þeir leikmenn sem eru samningsbundnir Seattle fara með liðinu til Oklahoma. Bennett keypti félagið árið 2006 fyrir 27,5 milljarða kr. en hann er fæddur í Oklahoma og kemur því með NBA-lið í heimabæinn.
Seattle var sett á laggirnar árið 1967. Liðið varð meistari árið 1979 í fyrsta og eina sinn í sögu liðsins. Seattle tapaði í úrslitum NBA-deildarinnar tímabilið 1995-1996 gegn Chicago Bulls.