Hildur Björg Kjartansdóttir og stöllur í Celta Zorka fara vel af stað í spænsku B-deildinni í körfubolta í ár. Liðið vann góðan 66:52-sigur á Arxil í 2. umferðinni í kvöld og er Zorka á toppnum með fullt hús stiga.
Landsliðskonan átti afar góðan leik og skoraði hún 12 stig, tók 11 fráköst og náði þar með tvöfaldri tvennu og það á 24 mínútum.
Hildur er á sínu fyrsta ári með Celta Zorka eftir að hún gekk til liðs við félagið frá Legánes fyrir tímabilið.