Tvö af sigursælustu liðum landsins í körfuknattleik mætast í kvöld þegar 8. umferðin heldur áfram í Dominos-deild karla.
Þrír leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistararnir í KR taka á móti Njarðvík í Frostaskjólinu. KR vann góðan útisigur á Keflavík í síðustu umferð og Njarðvík rótburstaði Þór Ak. 113:52.
Í Grafarvogi eigast við Fjölnir og Tindastóll og þá fara Valsmenn í heimsókn til Grindavíkur.
Keflavík og Stjarnan eru nú jöfn á toppnum með 12 stig en Keflavík á leik til góða.
Þór Akureyri og Stjarnan áttust við í gær í fyrsta leik umferðarinnar.