Martin Hermannsson og samherjar hans í þýska liðinu Alba Berlín eru komnir í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í körfubolta eftir 82:77-sigur á Mitteldeutscher á heimavelli í dag.
Martin átti fínan leik og skoraði sjö stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á tæpum 17 mínútum.
Í gær tryggðu Bamberg og Ulm sér sæti í undanúrslitum, en síðasti leikur átta liða úrslitanna fer fram síðar er í dag er Bonn og Oldenburg mætast.
Þótt lítið sé eftir af árinu eiga Martin og félagar sex leiki til áramóta. Sá næsti er gegn Bayern München í EuroLeague, sterkustu keppni Evrópu.