Handklæðið sem var yfir öxlunum á körfuknattleiksmanninum Kobe Bryant eftir hans síðasta leik á ferlinum, var í dag selt á uppboði á 33.000 dollara eða 4,6 milljónir króna.
Bryant var með handklæðið á öxlunum þegar hann kvaddi Staples Center, heimavöll Los Angeles Lakers, í síðasta skipti sem leikmaður. Lék hann með félaginu allan sinn feril.
Stuðningsmaður Lakers greip handklæðið og hefur það verið selt nokkrum sinnum síðan. Fylgdu með tveir miðar á leikinn sem var spilaður 13. apríl 2016. Bryant skoraði 60 stig í 101:86-sigri á Utah Jazz.
Bryant lést í þyrluslysi 26. janúar síðastliðinn.