Ísland sigraði Lúxemborg 90:76 í forkeppni HM 2023 í körfuknattleik í Eurovia Aréna í Bratislava í Slóvakíu í dag.
Ísland er í efsta sæti B-riðils forkeppninnar með 5 stig en Lúxemborg er án stiga í fjórða og neðsta sæti riðilsins. Kósóvó og Slóvakía mætast í dag og Kósóvó getur þá endurheimt toppsætið.
Leikurinn gekk ekki of vel hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik. Hittnin var slæm og Lúxemborg var yfir að loknum fyrri hálfleik 38:34. Leikmönnum gekk illa að finna Tryggva nærri körfunni og sóknunum lauk gjarnan með þriggja stiga skotum. Tryggvi skoraði ekki í opnum leik í fyrri hálfleik.
Leikurinn gerbreyttist í þriðja leikhluta. Þegar staðan var 47:40 fyrir Lúxemborg varð vendipunktur í leiknum þegar Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sjö stig í röð en Hörður er nú orðinn „gamli maðurinn“ í liðinu. Þetta frumkvæði Harðar gaf liðinu byr undir báða vængi og því var vel fylgt eftir.
Ísland náði tíu stiga forskoti og í síðasta leikhlutanum komst Lúxemborg ekki nær en sex stig. Íslenska liðið landaði öruggum sigri en munurinn varð mestur nítján stig.
Leikmönnum tókst að finna Tryggva í sókninni í síðari hálfleik svo um munaði. Skoraði hann 17 stig í leiknum og því 16 í síðari hálfleik. Alls tók Tryggvi 11 fráköst.