Annata kaupir breskt hugbúnaðarfyrirtæki

Sigurður Hilmarsson, forstjóri Annata.
Sigurður Hilmarsson, forstjóri Annata. Ljósmynd/aðsend

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Annata hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í breska hugbúnaðarfyrirtækinu IBRL Ltd. Markmiðið með kaupunum mun vera að styrkja stöðu Annata í Bretlandi og að nýta þekkingu starfsmanna IBRL til frekari sóknar frá skrifstofum félagsins í Manchester og Portsmouth að því er segir í tilkynningu frá Annata.

Annata og IBRL munu á næstu mánuðum sameina starfsemi sína undir nafni Annata og verður skrifstofa Annata í Bretlandi sameinuð skrifstofu IBRL í Portsmouth. Við hið sameinaða félag munu starfa alls 170 starfsmenn og munu þeir starfa á 15 skrifstofum í 12 löndum og sinna þaðan viðskiptavinum í yfir 50 löndum um heiminn.

Þar af verða starfsmenn fyrirtækisins í Bretlandi um 35 talsins en auk þess mun fyrirtækið nýta krafta fjölda verktaka. 

Hyggja á frekari landvinninga

„Fjárfestingin er liður í uppbyggingu Annata sem alþjóðlegs hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtækis. Eigendur og stjórnendur félagsins hyggja á frekari landvinninga á komandi misserum og stefnt er að því að fjöldi starfsmanna nálgist 200 í árslok,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Þá mun rekstur félagsins hafa verið jákvæður frá stofnun þess árið 2001 en vaxtarhraði þess hefur aukist í framhaldi af aukinni áherslu á þróun viðskiptahugbúnaðar og útflutning sem hófst árið 2005.

„Erlend starfsemi Annata byggir á þróun og sölu viðskiptahugbúnaðar fyrir framleiðendur bíla og vinnuvéla og fyrirtækja sem sinna dreifingar-, sölu- og þjónustustarfsemi í sama iðnaði,“ er haft eftir Sigurði Hilmarssyni, forstjóra Annata. Hann segir yfir 70% tekna Annata eiga uppruna sinn erlendis og það hlutfall muni hækka á komandi árum. Þá hafi vöxtur félagsins á milli áranna 2015 og 2016 verið um 40% og stefnt sé að um 50% vexti í ár.

„Verkefnastaða er góð hér heima og erlendis og útlit gott á flestum mörkuðum. Í alþjóðlegu samhengi hefur hækkun kostnaðar hérlendis gert að verkum að aukin áhersla hefur verið lögð á uppbygginu erlendis og eru kaupin í Bretlandi gott dæmi um það,“ segir Sigurður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK