Oculis flytur höfuðstöðvar til Sviss

Einar Stefánsson, augnlæknir og einn af stofnendum Oculis.
Einar Stefánsson, augnlæknir og einn af stofnendum Oculis. mbl.is/Eggert

Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis hefur samið við þrjá alþjóðlega vaxtarsjóði á heilbrigðissviði, Bay City Capital, Novartis Venture Fund og Pivotal bioVenture Partners, um 2.100 milljóna króna hlutafjáraukningu. Nýjar höfuðstöðvar fyrir félagið verða settar upp í Lausanne í Sviss.

Nýtt félag, Oculis SA, hefur verið stofnað um höfuðstöðvar félagsins í Sviss og mun það eignast allt hlutafé í Oculis ehf. Rannsóknar- og þróunarstarfsemi Oculis verður eftir sem áður á Íslandi og verður sú starfsemi efld, m.a. með nýrri rannsóknaraðstöðu og fjölgun starfsmanna, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Oculis. 

Oculis var stofnað af Dr. Einari Stefánssyni, prófessor í augnlækningum og Dr. Þorsteini Loftssyni, prófessor í lyfjafræði. Félagið lauk við fjármögnun í júní 2016 sem leidd var af Brunni vaxtarsjóði og Silfurbergi ehf., en þessir fjárfestar tóku einnig þátt í núverandi hlutafjáraukningu.

Starfsemi Oculis byggir á einkaleyfavarinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Hlutafjáraukningunni er ætlað að fjármagna áframhaldandi klínískar rannsóknir á OC-118, því lyfi sem lengst er komið í þróun hjá félaginu, auk annarra þróunarverkefna.

Dr. Riad Sherif, sem áður gengdi stöðum yfirmanns hjá alþjóðlega augnlækningafyrirtækinu Alcon og lyfjarisanum Novartis, mun taka við starfi forstjóra Oculis SA. Páll Ragnar Jóhannesson mun taka við starfi fjármálastjóra félagsins ásamt því að gegna stöðu framkvæmdastjóra Oculis á Íslandi. Dr. Sabri Markabi, fyrrum yfirmaður rannsóknar- og þróunar hjá Alcon, mun taka við stöðu þróunarstjóra. Þá munu stofnendur Oculis, Dr. Einar Stefánsson og Dr. Þorsteinn Loftsson, áfram leiða rannsóknir og nýsköpun hjá Oculis SA.

Florent Gros, fulltrúi Novartis Venture Fund verður stjórnarformaður Oculis SA, en auk hans er stjórn félagsins skipuð Árna Blöndal, Stefáni Jökli Sveinssyni, Lionel Carnot, Rob Hopfner, Dr. Þorsteini Loftssyni og Dr. Riad Sherif.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK