Undirritaður hefur verið nýr samstarfssamningur Samskip Logistics og flutningafyrirtækisins DC Logistics Brasil um þjónustu á landsvísu í Brasilíu vegna vaxandi gámaflutninga í Brasilíu.
Í tréttatilkynningu þess efnis segir að með samkomulagi fyrirtækjanna verði til ný umgjörð um starfsemi Samskip Logistics í Brasilíu, þar sem byggt sé á styrk beggja.
Teymi Samskip Logistics í Salvador hefur verið fært á skrifstofu DC Logistics Brasil í borginni og fyrirtækið tekið yfir skuldbindingar sem þar voru áður á hendi skrifstofu Samskipa. DC Logistics mun annast öll framtíðarviðskipti Samskip Logistics í Brasílíu og nýtir til þess 11 skrifstofur fyrirtækisins á landsvísu.
Hjá DC Logistics Brasil, sem stofnað var 1994, starfa yfir 200 manns og er fyrirtækið meðal helstu flutningafyrirtækja Brasilíu.