Landssamband kúabænda segir að verðhækkanir á mjólkurvörum upp á 7,4% megi rekja til aukinnar álagningar verslunarinnar. Heildsöluverð á mjólkurvörum hafi einungis hækkað um 3,8% á umræddu tímabili.
Greint var frá því fyrir helgi að verð á matvöru hafi í heildina lækkað um 1,9% á síðustu tveimur árum og megi helst rekja það til gengisstyrkingar. Undantekningin á þessu sé verð á mjólkurvörum. Sá undirflokkur matvörunnar skeri sig algjörlega úr og hafi hækkað langmest eða um 7,4%.
Í frétt á vef Landssambands kúabænda kemur fram að heildsöluverð á mjólkurvörum sem verðlagsnefnd nær til hafi einungis hækkað um 3,8% á umræddum tíma, frá frá janúar 2016 til janúar 2018. Því sé ljóst að verðhækkun umfram það megi rekja til aukinnar álagningar verslunarinnar.
„Er í tilkynningu ASÍ lagt upp með að hækkun á mjólkurvörum skýrist af því að lítil eða engin samkeppni sé á Íslandi á mjólkurvörumarkaði og því svigrúm til hækkana þrátt fyrir ytri aðstæður eins og gengisstyrkingu,“ segir í fréttinni vef landssambandsins.
Innflutningur mjólkurafurða hefur þrefaldast á síðust fimm árum og vinnsla smærri afurðastöðva hefur rúmlega fjórfaldast á sama tíma. Samkeppni á mjólkurvörumarkaði hefur þess vegna aukist verulega síðustu árin. Réttar skýringar á þessari verðþróun eru að erlendar vöru lækka vegna styrkingar krónunnar en innlendar vöru hækka vegna innlendra hækkana, meðal annars launa.“
Þá er hækkun á heildsöluverði mjólkuvara meðal annars rakin til mikilla launahækkanna á umræddu tímabili og þar af leiðandi hærri framleiðslukostnaðar.