Verktakafyrirtækið Ístak hf. hagnaðist um 193 milljónir króna á síðasta rekstrarári sem lauk 30. september 2017, en tapið var 485 milljónir króna tap árið á undan.
„Veruleg umskipti hafa orðið á rekstri félagsins eftir að danska verktakafyrirtækið Per Aarsleff A/S keypti félagið, er þetta annað heila rekstrarárið undir þeirra stjórn,“ segir í fréttatilkynningu.
Velta félagsins var 10,4 milljarðar en var 6,8 milljarðar árið á undan. Eignir félagsins námu 5,4 milljörðum í lok rekstrarársins, eigið fé 1,1 milljarður eða 21%.
Fyrirtækið lauk fjölbreyttum verkefnum á síðasta ári, meðal annars hafnarframkvæmdum og byggingarframkvæmdum í Nuuk á Grænlandi, aðalstöðvum fyrir Airport Association, endurbótum á Sundhöll Reykjavíkur, tengivirki við Kröflu fyrir Landsnet, stækkun við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, nýjum húsakynnum SÁÁ Kjalarnesi og dælu- og frárennslislögnum fyrir Akranes og Borgarnes.
„Verkefnastaða hjá félaginu er góð næstu misseri, samtals vinnur fyrirtækið að 17 framkvæmdum eins og er og þau stærstu eru nýtt sendiráð USA, Marriott-hótel og verslana- og íbúðabygging við Reykjavíkurhöfn, Helgafellsskóli í Mosfellsbæ og bygging nýs viðlegukants við Kleppsbakka,“ segir í tilkynningunni.