Fjármálafyrirtækið Goldman Sachs hefur birt tölur yfir launamun kynjanna í starfsemi fyrirtækisins í Bretlandi. Fyrirtækið segir að langt sé í land í þessum efnum.
Samkvæmt úttekt Goldmand Sachs sem fréttavefur breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá er miðgildi launamunarins 36,4% og 67,7% hvað kaupauka varðar. Um er að ræða úttekt á fjárfestingabankastarfsemi fyrirtækisins þar sem 6 þúsund manns vinna.
Í tilkynningu frá Goldman Sachs segir að tölurnar endurspegli ójafnvægi á milli kynjanna í efri stigum fyrirtækisins.
Meðalmunurinn á launum er 55,5% og meðalmunur á kaupaukum er 72,2%.
Öll fyrirtæki með yfir 250 starfsmenn í Bretlandi þurfa að gera grein fyrir launamun kynjanna í starfsemi sinni fyrir fjórða apríl.
„Þó að við höfum náð árangri á síðustu árum þegar kemur að stöðu kvenna og fjölbreytni er enn langt í land,“ segir í úttekt fyrirtækisins. „Helsta áskorunin er að að fjölga konum á efri stigum fyrirtækisins.“